Könnun

Er kominn tími á nýja könnunn?

Auglýsing

Til hamingju með afmælið Árni

05. janúar 2008 klukkan 20:32

Já kannski tími til kominn á blogg, svona í tilefni að nýju ári. Held það.

Ætlar að byrja hérna á að óska honum Lárussi Geir (Árna Geir) til hamingju með afmælið, þó svo að hann hafi gleymt að gera það þegar ég átti  afmæli. En hvað um það.

Kvöldið í kvöld verður tekið með trompi og þegar ég segi tromp þá á ég við bjór, NFL og WII sem er alger snilld ef ég á að segja eins og er. Í kvöld verður horft á leik Seattle Seahawks (sem er mitt lið) gegn Washington Redskins og má finna góða umfjöllun á þeim leik á síðunni http://blogg.visir.is/nfl sem hinn landskunnugi Johnson sér um þá síðu. Til gamans má geta að Johnson spilar með 06 apríl undir númerinu 99.

 

Í gær hófst nýr atburður sem ég ætla að gera að vikulegum atburði hér á síðunni.

Hann mun kallast áskorun vikunnar og ætla ég að fá Bergþór (þið eruð aumingjar og eruð einskyns virði af því að ég er stærri en þið) Þorsteinsson. Hann mun nú þegar vera búinn að taka eina slíka áskorun og einkenndist hún að því að drekka þrjá lítra að mjólk á hálftíma án þess að æla. Hann stóðst þessa áskorun með prýði og óska ég honum til hamingju með það. Ekki verður sýnt myndband að þessari atburðarás þar sem hún þótti einkar leiðinleg og um að næsta áskorun leiði af sér myndvænni afleiðingar. Þannig að Beggi: Game on.

 

Einnig vil ég bæta því inní að síðan ég missti þessi umtöluðu tólf kíló þá hef ég tekið eftir mikilli athygli frá kvenþjóðinni. Ég hef bara eitt um það að segja. HÆTTIÐ ÞIÐ AÐ AFKLÆÐA MIG MEÐ AUGUNUM HVERT SEM ÉG FER, ÞETTA ER ORÐIÐ DÁLDIÐ PIRRANDI. Nei ég er að grínast, ég nýt hvers augnabliks af þessu.

Miðlungs feiti kveður að sinni.

Böðvar Pétursson
4 athugasemdir

22

16. desember 2007 klukkan 02:36
Jæja, þá er annað ár gengið í garð, allavegana fyrir mig, feiti orðinn 22 ára gamall og nú fer að styttast í ellilaunaaldurinn maður, suss, minn farinn að hlakka til.
Annars er lítið um að vera eins og er, prófatíminn skollinn á og ekkert annað í stöðunni en að læra og læra og læra eða allavegana láta líta út fyrir að maður sé að læra. 3 próf búinn og aðeins 1 eftir og þá getur maður sagt skilið við bölvuðu enskuna. Ekki nenni ég að vita hvað orð eins og abbreviation og onomatopoeia þýða, hvað þá að geta stafað þau. Bölvað rugl. Svo er það áræðanlega bara sagnfræðin sem tekur við eftir áramót, sýnist allt stefna í það.

Annars hef ég ekki meira að sega í bili og bið öllum vel að lifa, fyrir utan helvítis fíflið sem keyrði á bílinn minn meðan hann var lagður við háskólann, sá maður má rotna í líki af hesti í fjögur ár. Þoli ekki fólk sem keyrir á bíla og stingur síðan af án þess að skilja eftir miða eða eitthvað. Og ef svo ólíklega vill til að ég finni einhvern tímann þann sem gerði þetta þá á sá von á illu.

Svo vil ég líka minna á nýja könnun hér til hliðar
Böðvar Pétursson
7 athugasemdir

Reykjavík kann ekki að keyra.

30. nóvember 2007 klukkan 20:05
Já, núna ætti öllum að vera orðið ljóst að fólk frá Reykjavík kann ekki að keyra. Bölvaðir villimenn, gera allt til þess að þurfa ekki að stoppa á rauðu ljósi, sikk sakkandi bíla á milli til að spara sjö sekúndur. Ætti að gefa út veiðileyfi á þessi kvikindi.

En nóg um það. Nú er feita loksins farið að miða svolítið áfram. Komst á vigt í fyrsta skipti síðan í ágúst og viti menn, mér til mikillar furðu brotnaði hún ekki. Ó nei,svo aldeilis ekki. Í staðinn sýndi hún tölur, tölur sem ég hef ekki séð í 7 ár. Hún sýndi 96 kíló, sem þýðir að síðan í september hafa farið 11 kíló, sem mér þykir nokkuð gott. Ég fagnaði þessu náttúrulega með stórri máltíð á KFC   nei meina salatbarnum, með 14 kílóum af káli. Mmmm, súkkulaði   nei ég meina kál.

Allaveganna, nú getið þið hætt að suða í mér um blogg í svona tvær vikur þannig að sjáumst þá.
Böðvar Pétursson
7 athugasemdir

Gullfiskur

31. október 2007 klukkan 15:46

Þar sem Guðmundur Jónsson hefur heimtað nýtt blogg með miklum látum, hótunum og vanvirðingu hef ég ákveðið að verða við ósk hans.

Á morgun er vika síðan feiti byrjaði að vinna. Já já, þið heyrðuð rétt, öll 386 kílóin eru byrjuð að vinna í netagerð. Hmmm, hvern annan þekkja menn sem vinnur í netagerð. Neibb, það er ekki Peter Jackson, sem meðal annars er 46 ára í dag og óska ég honum til hamingju með það. Maðurinn sem verið er að tala um er enginn annar en Bergþór, ég er stór og er þar með betri en þið, Þorsteinsson og þakka ég honum kærlega fyrir að útvega mér þá vinnu.

Annars læt ég þetta nægja núna EN, Guðmundur. Ef þú kemur með svona hótanir aftur þá mun ég gefa þér gullfisk, sem ég mun leyfa þér að hafa í um viku og þá mun ég koma og matreiða hann, þannig að passaðu þig.

.

Böðvar Pétursson
10 athugasemdir

Stór ákvörðun

20. október 2007 klukkan 18:27
Já, ég hef tekið stóra ákvörðun í dag, mætti jafnvel segja að ég hafi fengið einskonar uppljómun. Ég, Böðvar Pétursson, hef tekið þá ákvörðun að segja skilið við líf herlegsheytis og sykurneyslu. Ég er hættur að borða nammi, drekka gos og borða skyndibitamat. Ekkert nema ávextir og hollusta núna fram að jólum.

Því miður var ekki eitt einasta orð í málsgreininni að ofan satt. Glætan að þessi feiti hlunkur gæti nokkurn tímann sagt skilið við sína bestu félaga, Big mac og Big tasty. ALDREI.
Annars hef ég tekið miklum framförum í þessum málum uppá síðkastið. Ekki mikið af hamborgurum, pizzum, pulsum eða skonsum í mínu lífi þessa stundina. En þeir koma þó stundum í heimsókn annars lagið eins og sönnum vinum sæmir og þá er sko gaman. Haha, já fátt betra en að fá gamla og góða félaga í heimsókn.

Feiti kveður frá borg freistinga og rigningar.
Böðvar Pétursson
6 athugasemdir

Gefið mér súkkulaði!!

16. október 2007 klukkan 21:38

Já það er erfitt að grenna sig þegar maður er alltaf svangur. Ég er að brjálast hérna. Og það sem er skrítnast við þetta er það að ég var að borða. Hvað er í gangi? Þetta er rugl. Þó get ég ekki neitað því að ég hefði ekkert á mót því að fullnægja þessum þörfum mínum núna. Væri alveg til í að rífa í mig steikur, fiska, kökur mmm, súkkulaðikökur.
En nóg með það, it aint gonna happen.

En á góðu nótunum, ég fór út að hlaupa í dag, finn alveg hvernig formið þeytist til baka og bara tímaspursmál þangað til kílóin fjúka burt og maður kemst aftur í sitt gamla form. Hræðilega langt síðan það var maður. 2002 var maður í sínu besta formi, þá var maður enn í Huginn. Spurning um að byrja aftur og verða lykilmaður í þessu liði. Rífa liðið upp úr þessari þriðju deild. Niii held ekki. Held mig bara við trommurnar.

Feiti kveður að sinni.
Böðvar Pétursson
2 athugasemdir

Spurning að fara að sofa?

14. október 2007 klukkan 05:42
Já, það er spurningin, hvað er maður að gera vakandi á þessum tíma. Og maður er ekki einu sinni í glasi. Gengur ekki.
Annars er þetta kvöld (og nótt) búið að vera skelfilegt hvað varðar freistingar. Mig er ekki búið að dreyma um annað en MacDonalds hamborgara, KFC löðrandi í barbique sósu, dominos og stafla af skonsum með miklu beikoni, spældum eggjum og öllu þessu yrði drekkt í flóði af sírópi. Mmmmmm.
En já, ég má ekki við þessu, ekki ef maður segist vera í átaki. Þess vegna kom ég með plan. Ég hreyfi mig eins mikið og ég get þangað til loka Desember, vinn veðmálið við Sveinbjörn og eyði síðan öllum mínum tíma fram í September á næsta ári í að borða skonsur með beikoni, eggjum og flöskum af sírópi, síðan endurtek ég leikinn að ári liðnu. Þetta er eitthvað sem ég verð að íhuga vel og vandlega. En allaveganna, feiti þarf sinn megrunarsvefn þannig að öll 450 kílóin kveðja að sinni.
Böðvar Pétursson
8 athugasemdir

Númer 1

08. október 2007 klukkan 21:29
Þá er komið að því, endurkoma mín í bloggheiminn eftir áralanga fjarveru.   Ég ætla nú ekki að fara í það sem hefur gerst hjá mér á þeim tíma, læt mér nægja að fara í gegnum síðustu daga.

Það helsta er það að feiti kallinn hefur hrist af sér fimm kíló á síðasta mánuði og á einungis eftir að henda 15 kílóum í viðbót fyrir áramót svo að takmarkinu náist. 85 kg í lok ársins. Tekst það? Held ekki en það er um að gera að reyna.


Í dag fór ég í strætó, ekki sem farþegi heldur sem teljari. Ég sat sem sagt í stætó frá 12 til 18:30 og taldi þá sem komu inn og þá sem fóru út og get ég með sanni sagt að þessi sæti eru ekki til þess gerð að sitja lengur en 35 mínútur. Alveg er þetta að drepa veslings þunga líkamann minn. En þetta er fínt borgað, annars væri ég ekki að fara aftur á miðvikudaginn.

Feiti kveður


Böðvar Pétursson
7 athugasemdir