Númer 1
08. október 2007 klukkan 21:29
Þá er komið að því, endurkoma mín í bloggheiminn eftir áralanga fjarveru. Ég ætla nú ekki að fara í það sem hefur gerst hjá mér á þeim tíma, læt mér nægja að fara í gegnum síðustu daga.
Það helsta er það að feiti kallinn hefur hrist af sér fimm kíló á síðasta mánuði og á einungis eftir að henda 15 kílóum í viðbót fyrir áramót svo að takmarkinu náist. 85 kg í lok ársins. Tekst það? Held ekki en það er um að gera að reyna.
Í dag fór ég í strætó, ekki sem farþegi heldur sem teljari. Ég sat sem sagt í stætó frá 12 til 18:30 og taldi þá sem komu inn og þá sem fóru út og get ég með sanni sagt að þessi sæti eru ekki til þess gerð að sitja lengur en 35 mínútur. Alveg er þetta að drepa veslings þunga líkamann minn. En þetta er fínt borgað, annars væri ég ekki að fara aftur á miðvikudaginn.
Feiti kveður

Böðvar Pétursson