Könnun

Er kominn tími á nýja könnunn?

Auglýsing

Gefið mér súkkulaði!!

16. október 2007 klukkan 21:38

Já það er erfitt að grenna sig þegar maður er alltaf svangur. Ég er að brjálast hérna. Og það sem er skrítnast við þetta er það að ég var að borða. Hvað er í gangi? Þetta er rugl. Þó get ég ekki neitað því að ég hefði ekkert á mót því að fullnægja þessum þörfum mínum núna. Væri alveg til í að rífa í mig steikur, fiska, kökur mmm, súkkulaðikökur.
En nóg með það, it aint gonna happen.

En á góðu nótunum, ég fór út að hlaupa í dag, finn alveg hvernig formið þeytist til baka og bara tímaspursmál þangað til kílóin fjúka burt og maður kemst aftur í sitt gamla form. Hræðilega langt síðan það var maður. 2002 var maður í sínu besta formi, þá var maður enn í Huginn. Spurning um að byrja aftur og verða lykilmaður í þessu liði. Rífa liðið upp úr þessari þriðju deild. Niii held ekki. Held mig bara við trommurnar.

Feiti kveður að sinni.
Böðvar Pétursson
Sandra Rut
 
Elsku feiti.. þegar við byrjum í þú veist þá byrja sko kílóin að fjúka ;)
Hvað segirðu um að byrja á þriðjudaginn??

Tjékkaðu á þessu:
http://www.matseld.is/uppskriftir/uppskrift_skoda.asp?cmd=view&id=1200

Ef þú vilt eitthvað sætt þá er gott ráð að borða frosin ber eða fosna ávexti í bitum.. það er pínu stemming í því sko ;)

Vertu sterkur... Ég er lað reyna að hætta að borða nammi á virkum dögum og djöfull er það erfitt.. erum í þessu saman :)
18. október 2007 klukkan 21:46
mmm djöfulll langar mig í einn nonna núna
19. október 2007 klukkan 22:42

Skrifa athugasemd