Reykjavík kann ekki að keyra.
30. nóvember 2007 klukkan 20:05
Já, núna ætti öllum að vera orðið ljóst að fólk frá Reykjavík kann ekki að keyra. Bölvaðir villimenn, gera allt til þess að þurfa ekki að stoppa á rauðu ljósi, sikk sakkandi bíla á milli til að spara sjö sekúndur. Ætti að gefa út veiðileyfi á þessi kvikindi.
En nóg um það. Nú er feita loksins farið að miða svolítið áfram. Komst á vigt í fyrsta skipti síðan í ágúst og viti menn, mér til mikillar furðu brotnaði hún ekki. Ó nei,svo aldeilis ekki. Í staðinn sýndi hún tölur, tölur sem ég hef ekki séð í 7 ár. Hún sýndi 96 kíló, sem þýðir að síðan í september hafa farið 11 kíló, sem mér þykir nokkuð gott. Ég fagnaði þessu náttúrulega með stórri máltíð á KFC nei meina salatbarnum, með 14 kílóum af káli. Mmmm, súkkulaði nei ég meina kál.
Allaveganna, nú getið þið hætt að suða í mér um blogg í svona tvær vikur þannig að sjáumst þá.

Böðvar Pétursson

Hvernig væri annars að fara að blogga???