Til hamingju með afmælið Árni
Já kannski tími til kominn á blogg, svona í tilefni að nýju ári. Held það.
Ætlar að byrja hérna á að óska honum Lárussi Geir (Árna Geir) til hamingju með afmælið, þó svo að hann hafi gleymt að gera það þegar ég átti afmæli. En hvað um það.
Kvöldið í kvöld verður tekið með trompi og þegar ég segi tromp þá á ég við bjór, NFL og WII sem er alger snilld ef ég á að segja eins og er. Í kvöld verður horft á leik Seattle Seahawks (sem er mitt lið) gegn Washington Redskins og má finna góða umfjöllun á þeim leik á síðunni http://blogg.visir.is/nfl sem hinn landskunnugi Johnson sér um þá síðu. Til gamans má geta að Johnson spilar með 06 apríl undir númerinu 99.
Í gær hófst nýr atburður sem ég ætla að gera að vikulegum atburði hér á síðunni.
Hann mun kallast áskorun vikunnar og ætla ég að fá Bergþór (þið eruð aumingjar og eruð einskyns virði af því að ég er stærri en þið) Þorsteinsson. Hann mun nú þegar vera búinn að taka eina slíka áskorun og einkenndist hún að því að drekka þrjá lítra að mjólk á hálftíma án þess að æla. Hann stóðst þessa áskorun með prýði og óska ég honum til hamingju með það. Ekki verður sýnt myndband að þessari atburðarás þar sem hún þótti einkar leiðinleg og um að næsta áskorun leiði af sér myndvænni afleiðingar. Þannig að Beggi: Game on.
Einnig vil ég bæta því inní að síðan ég missti þessi umtöluðu tólf kíló þá hef ég tekið eftir mikilli athygli frá kvenþjóðinni. Ég hef bara eitt um það að segja. HÆTTIÐ ÞIÐ AÐ AFKLÆÐA MIG MEÐ AUGUNUM HVERT SEM ÉG FER, ÞETTA ER ORÐIÐ DÁLDIÐ PIRRANDI. Nei ég er að grínast, ég nýt hvers augnabliks af þessu.
Miðlungs feiti kveður að sinni.
væri gaman ef fólk kæmi hérna með hugmyndir að áskorun handa bödda :D
er kominn með nokkrar hugmyndir en eitthvað betra hlýtur að vera til !!!